Tuesday, September 06, 2005

Krókódíll í pels

Búin að fara í annan tíma og það gekk aðeins betur. Mætti á réttum tíma og hann var lengur en fimm mínútur. Þetta var nú bara léttur kynningirtími í mannfræði kynmenningar og m.a. áttu nemendurnir að kynna sig, allir fóru að hlægja þegar ég kynnti mig, man ekkert hvað ég sagði, þannig að ég veit ekkert af hverju allir hlógu!!

Bústaðir hófu göngu sína aftur eftir sumarfrí í gær og ó hvað það var gott að koma í litlu kjallaraholuna mína. Ekki misskilja mig Þróttheimar eru ágætt pleis en Bústaðir, ó Bústaðir... Vegna þess að það var mánudagur í gær var náttúrulega staffafundur milli 5 og 7 og var hann sameiginlegur með Tónó og Þrótth. Það var svo rafmögnuð stemmning á þessum fundi að það er ekki fyndið. Það voru allir eitthvað svo æstir og það þurftu allir að tala í einu og segja brandara. Þetta er náttúrurlega svo fyndið fólk. En það var greinilega mjög mikill spenningur í búkum fólks og hlakka ég því sérstaklega til tveggja starfsdaga í röð um helgina í faðmi þessara skrímsla.

Að öðru. Sætir karlmenn. Já þeir eru nokkrir til í heiminum. Er búin að sjá nokkra undanfarið. En þeir eru allir útlendingar og til í heimi sem ég á ekki heima í. Nokkur dæmi: meðlimir Franz Ferdinand jamm, Johnny Depp í Jay Leno í gær jammí, Sawier (veit ekki hvernig það er skrifað) úr Lost úff á ekki til orð. Já. Þetta var hönk horn heru í dag. Takk og bless.

3 Comments:

At 2:55 PM, Blogger Dancing queen said...

Já rafmögnuð stemmning á ekki bágt með að trúa því... Hvernig er nýja krúið er það að lúkka (hehehe lúkka glatað orð...)Oh ég öfunda þig að vera að chilla með those crazy teens sakna minna svoldið.
Já hvernig er í skólanum er allt gamala liðið á staðnum???

 
At 5:20 PM, Blogger mannfredo said...

Elva: jú Saaid er alveg ágætur líka og aðeins meira en það
Unnur:skólinn kominn á fullt og gengur vel
Linda:eiginlega allt sama fólkið og í fyrra 3 nýjar stelpur(þar á meðal Tóta (DK) og Stína (Siglunes)) og einn nýr strákur í Bústaði sem ég hef aldrei séð, sem er 33 ára

 
At 4:01 AM, Blogger Ofurrauðkan said...

eh 33 ára STRÁkUR???

 

Post a Comment

<< Home