Wednesday, November 15, 2006

Fór í heilnudd í morgun..mmmmmmm.. það var alveg ákaflega þægilegt. Hún Sunna litla (samt stærri en ég) frænka mín er algjör snillingur, snyrtikona með meiru. Það er svooo kalt að það veitir víst ekki af að hita kroppinn aðeins upp fyrir átök líðandi stundar, maður á alveg nóg með daglegt amstur hvað þá allt sem leggst ofan á það.
En nóg um það. Ég er nú stödd við upphaf ritgerðasmíða sem gengur ekkert. Það er svo erfitt að byrja að það er fáránlegt. En svo veit ég alveg að þetta er ekkert mál þegar maður er bara byrjaður. Ekki nóg að vita það maður verður víst að gera eitthvað í því. Æi, ég nenni ekki að stressa mig. Það eru að koma jól og ég verð bara að komast í gegnum þetta ritgerða og prófa tímabil með reisn. Þetta tímabil er reyndar ekki búið fyrr en 20 des. hva, það er bara mánuður.

...oooog þá lýkur formlega leiðinlegasta bloggi veraldar. takk fyrir mig veriði sæl.
lofa engu með að vera skemmtilegri næst!

ég í nuddinu í morgun eins og engill, sjáiði hvað ég var fersk kl. 8:15!!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home