Tuesday, August 01, 2006

2. í sumarprófs læri

Jæja þá er ég mætt aftur. Hef ekki getað fengið mig til þess að drullast hingað fyrr vegna biturrar reynslu í síðustu viku. En núna er ég hér. Hefði líklega ekki komið nema af því að Auður hlunkur er hér líka að engjast um...
En já, sólin skín og það er 20 stiga hiti svo að ég bíst við að dvölin mín hér í dag verði ekki ýkja löng... ok ég er hætt að tala um það, og vorkenna mér að ég þurfi að vera að læra, þetta er jú mitt eigið val!!
Keypti mér tölvu í gær og BT var alveg að missa sig í að gefa mér eitthvað frítt með. Það fyndnasta sem ég fékk var kassi, já kassi af nýja orkudrykknum BT Bomba. Þannig að ef ykkur vantar orku til einhvers, já hvers sem er þá skal ég skaffa orkuna.
á myndinni eru ég og vinir mínir að flippa eftir að hafa drukkið heilan kassa af BT Bombu..

4 Comments:

At 7:16 PM, Anonymous Anonymous said...

gott gott gott... góða skemmtun á Ísafirði!

Saknaðarkveðjur

Gvöðrún

 
At 12:44 PM, Blogger Dancing queen said...

Til í smá bombu flipp!

 
At 5:05 PM, Anonymous Anonymous said...

hver þarf bombu þegar maður er með bumbu??

 
At 12:24 PM, Blogger Ofurrauðkan said...

þetta voru rosalega erfiðir tveir dagar á bókhlöðunni...alveg báðir tímarnir á dag!

 

Post a Comment

<< Home