Tuesday, June 13, 2006

Óli og unglingavinnan

Sælt veri fólkið, þ.e.a.s. ef einhver er enn að kíkja hér inn. Ég er búin að vera löt að blogg ég veit en ég nenni ekki að tala um það. Ég er að vinna í unglingavinnunni já það er gaman. Ég er samt enginn harðhaus í því að leiðbeina þessum blessuðu unglingsskinnum. Ekki eins og tíkin sem var með mig sumarið eftir 10.bekk. Hún var sækó. Setti mig og Röggu á Svartasta Lista Ever!! fyrir að vera lengi að planta trjám. H'un fór líka uppeftir á kvöldin og gróf upp tré sem við í hópnum höfðum verið að planta um daginn og einu sinni rak hún tvo stráka því hún böstaði þá fyrir að hafa grafið nokkur tré í holu!! Spes, pælið í að nenna því. Svo einu sinni var ég með leiðbeinanda sem ég og Þurí vinkona vorum í pínu uppáhaldi hjá. Við fengum alltaf að vera inni og þrífa skúrinn ef það var ringning og svo einu sinni borgaði hann okkur 2000 kall á mann fyrir að fara heim til sín og þrífa íbúðina hans!!! Ennþá meira spes... Sá væri ekki lengi að fjúka í dag. Ég er reyndar ekkert viss um að hann hefði haldið þessari vinnu ef þetta hefði spurst út. En já þetta eru sögurnar mínar úr unglingavinnunni. Það er sko ekkert svona í hópnum okkar Óla, við viljum ekki sjá það að vera að bjóða þeim heim til okkar, hvað þá að kíkja hingað eftir vinnu til að ganga úr skugga um að allt sé gert rétt...
hér sjáið þið hann Óla sem ég vinn með. Hann mundar úðarann af snilld...

7 Comments:

At 7:18 PM, Blogger Dancing queen said...

Ahahha! Það hljómar ekki leiðinlegt sumrið! Vonandi að Árni reddi mér einhverju í Tónó þá geta mannfræði skytturnar sameinast að nýju;) Héðan er gott að frétta. Maður er reyndar að steikjast úr hita ég skil ekki hvernig það er hægt að ætlast til af okkur íslendingunum að við þolum þetta hehehe... Nei ég get ekki kvartað þetta er yndislegt. Hlakka til að hitta á þig í slúður kaffi í júlí. Kiss Unnsan.

 
At 10:34 AM, Anonymous Anonymous said...

ooohhhh...hiti...langar í svoleiðis. Hlakka til að sjá þig líka unnsan mín. Hvenær keumurðu? Verðuru með mér í mannfræðinni í haust??

 
At 10:33 PM, Blogger Dancing queen said...

Ég kem heim 9 júlí. Jábbs... Veit ekkert hvað verður að næsta vetri er búin að skrá mig í HÍ samt þannig það er alltaf í spilunum.
Puss Unnsan.

 
At 10:53 PM, Anonymous Anonymous said...

Já, unglingavinnan er skemmtileg. Mitt uppáhalds sumar í unglingavinnunni er samt sumarið eftir 9. Þá fengum við að prófa svo margt. Sumar grínið... og já, ojj að týna dauða fugla og notaða smokka í Viðey. Talandi um spes!

Kv. G

 
At 8:56 AM, Anonymous Anonymous said...

Ekki gleyma notuðu dömubindunum!!!!

 
At 12:12 PM, Anonymous Anonymous said...

Jibbi Heran maett aftur... mikid buin ad sakna thin. Hvorn hopinn ertu med? Bid svo vel ad heilsa Olanum og hinu lidinu i B2.

Linda blinda

 
At 8:31 AM, Anonymous Anonymous said...

Sæl Linda mín:-) við óli erum með 9.bekkjar fjörliða. Hvenær kemurðu í sumarfrí á klakann?

 

Post a Comment

<< Home