Thursday, May 18, 2006

Crasy

Ooohh...ég er alveg kreisí í lagið Crasy sem er alltaf í útvarpinu...vvvúúhúú! Er að vinna í símadömujobbi í Tónabæ þessa dagana. Mikið fjör..:-/ En já, Júróvision,Reunion og Joanna Newsom... Þetta verður rosaleg helgi. Hlakka svo mikið að hitta gömlu skólafélagana að ég er að kúka í mig. Veit ekkert hvernig það á eftir að vera, en veit þó að það verður stuð. Hverfisbarinn klikkar líka ekki, jájá þetta verður haldið á þeim magnaða stað. Svo er það Júróvision. Hef nú líst því yfir áður hér á þessari síðu að ég er komin með algjört ógeð á henni Silvíu. Held að ég hafi skrifað það í mars, þannig að þið getið ímyndað ykkur hversu glöð ég er með hana núna:-! En ef ég þekki mig rétt á ég eftir að fyllast þjóðernisstolti á laugardaginn (þ.e. ef hún kemst áfram). Það gerðist alla veganna þegar Jónsi var að keppa með Heaven. Ég var alveg bara "já við vinnum þetta" þegar hann var búinn að flytja þetta hörmulega lag! Svona getur maður verið geðbilaður stundum. Sjáum til.

2 Comments:

At 6:23 PM, Anonymous Anonymous said...

Hvað, er ekkert að gerast hjá Heru?

 
At 11:48 PM, Anonymous Anonymous said...

jájá, þú ert pínu crazy... annars væri nú lítið gaman af þér!

Hafðu það gott mín kæra, heyri í þér á næstunni.

Kv. G

 

Post a Comment

<< Home