Thursday, August 31, 2006

Þjóð sem kann víst að standa saman..

Jæja, þá er það staðfest að Magni er kominn í 5 manna úrslit í Rock Star. Fékk flest atkvæði allra í þættinum í gær!! Þetta getum við. Allir standa saman og leggjast á eitt og þá er allt hægt. Hvar var þessi samstaða í mótmælum við Kárahnjúka, Íraksstríðið... Hvers vegna voru ekki sjónvarps- og útvarpsauglýsingar þá til að fá alla niður á Austurvöll til þess að mótmæla, standa saman gegn valdinu sem valtar yfir okkur? Kannski voru þær þar en meðaljóninn tók bara ekki eftir því vegna þess að það tengdist ekki skemmtanaiðnaðinum. Svo pirrast maður út í unglingana sem svo erfitt er að fá til þess að kíkja á hliðargötur mainstream-strætis þegar maður tekur sjálfur ekki þátt í því að mynda samstöðu og öflugt hópafl gegn því sem skiptir virkilega máli. Já, ég held að ef allir þeir sem vöktu og kusu Magna í fyrri nótt , þar á meðal ég, ættu að hugsa hvað þeir gætu gert næst þegar stjórnvöld taka mikilvæga ákvörðun um landið okkar og gjörðir þess. Það er gott að vera vitur eftri á!! En maður lærir meðan lifir og það þýðir ekkert núna að segja "hvað eigum við svo sem að gera..." Við getum bara gert helling. Alla vegana ætla ég að gera eitthvað.
mynd: ég að gera eitthvað

3 Comments:

At 12:39 PM, Anonymous Anonymous said...

Vel mealt!!!! Mikill sannleikur thar a ferd...vid getum nefnilega alveg helling thott litil seum. Vantar bara ad vekja folk upp og lata thad sja skoginn fyrir trjanum. Vaaa thetta var nu ljodraent hja mer... hihihihi!!!

 
At 2:16 PM, Anonymous Anonymous said...

já svo sannarlega, en hver ertu?

 
At 12:57 PM, Anonymous Anonymous said...

OOOps... Thetta var hun Linda Litla...

 

Post a Comment

<< Home