Thursday, January 26, 2006

slepja

Ég er eitthvað lasin í dag. Svaf lítið sem ekkert í nótt vegna þráláts kláða um allan líkaman... mmhmm.. hljómar ekki mjög girnilega. Ég drakk nefnilega vatnið úr krananum í Bústöðum í gær og ég held að það sé ástæðan. Það er þræl mengað og viðbjóðslegt þetta vatn. T.a.m. er vatnið í klósettunum þar alltaf gult, þó svo að það sé búið að sturta niður! Ástæða þess að ég drakk vatnið er sú að vatnið í tanknum var búið og nú er ég rauð undan klóruförum út um allt og svo ofan á það að þá missti ég allt í einu röddina í morgun af engri ástæðu! Hvar er Erin Brokovits núna þegar ég þarfnast hennar, eða Julia Roberts mér er sama hvor. Vill bara að einhver komist til botns í þessu ljóta máli.

Seinna

Voru kannski þessir kallar að eitra fyrir mér....

4 Comments:

At 4:45 PM, Anonymous Anonymous said...

Aei litla saeta... lattu ther nu batna sem fyrst... ja og ekki drekka vatnid i Bustodum!

Knus Linda

 
At 3:56 PM, Blogger Ofurrauðkan said...

hehehe ég las þetta ógeðslega hratt og skildi það þannig að þú hefðir drukkið vatnið úr klósettinu :) ...hvað veit ég, þú er svo "spes"...nei djóóóóóók..

 
At 9:18 PM, Anonymous Anonymous said...

Ææææ, greyið kellingin!

Láttu þér batna hróið mitt og farðu vel með þig.

G

 
At 10:09 PM, Anonymous Anonymous said...

Sæll Mannfreð, ekki er þetta nú gott að heyra... vona að þú lagist sem fyrst. Miss u sis

 

Post a Comment

<< Home